

Þú ert hér
Sameining eftirlitseininga
Þann 1. júlí síðastliðin var samþykkt í borgarráði að sameina á einum stað starfsemi innri endurskoðunar Reykjavíkurborgar, starfsemi umboðsmanns borgarbúa og starf persónuverndarfulltrúa með það að markmiði að einfalda og um leið styrkja starfsemi og skipulag þeirra aðila sem sinna eftirliti með starfsemi og stjórnsýslu Reykjavíkurborgar. Með samruna þessara skrifstofu verður því til leiðandi og öflug eftirlitsstofnun.
Starfsemin er nú rekin undir nafni innri endurskoðanda Reykjavíkurborgar.
Framundan eru breytingar en ennþá er hægt að senda inn erindi og fá ráðgjöf á netfangið umbodsmadur@reykjavik.is. Erindi tengd persónuverndafulltrúa fara á netfangið personuverndarfulltrui@reykjavik.is.